Naprapati í Kópavogi

Verkur í hné

Flestir hnéverkir án áverka stafa af álagi, til dæmis verkur framan á hnénu (hlauparahné) eða í sinum í kringum hnéð. Æfingar sem styrkja mjöðm og læri eru oftast mikilvægasti hluti meðferðarinnar.

Bóka tímaEngin tilvísun · Morgun- og síðdegistímar

Skrifað af Leifur Guðjónsson, naprapata D.N. · Síðast uppfært

Hvað eru hnéverkir?

Hnéverkur getur verið framan á hnénu í kringum hnéskelina, innan- eða utanvert eða aftan í hnésbót. Verkur framan á hné (patellofemoral pain) versnar oft þegar gengið er niður stiga, eftir langar setur eða við hnébeygjur.

Hopparahné (jumper’s knee) er álagsmeiðsli í hnésininni, rétt fyrir neðan hnéskelina. Það tengist endurteknum hoppum, spyrnum og sprettum og versnar við stökk, hnébeygjur og stigagöngu.

Liðþófameiðsli verða oft við snúning eða snögga stefnubreytingu. Einkennin geta verið verkur innan- eða utanvert í hné, bólga, smellir og stundum læsingartilfinning eða erfiðleikar við að rétta úr hnénu.

Algengar orsakir

Algengustu orsakirnar eru álag og venjur í daglegu lífi, sjaldnar alvarlegri ástæður:

  • Snögg aukning á hlaupum eða stökkum
  • Veikleiki í læris- og rassvöðvum
  • Stífleiki í ökkla eða mjöðm
  • Áverki á liðþófa eða liðbönd, þá oft eftir snúning

Hvernig nálgast naprapati hnéverki?

Naprapati skoðar hnéð og alla keðjuna frá mjöðm niður í fót. Meðferðin felur oftast í sér æfingar fyrir mjöðm og læri, álagsstýringu og mjúkvefjameðferð. Alþjóðlegar leiðbeiningar mæla með æfingum fyrir mjöðm og hné sem grunnmeðferð við verk framan á hné (Crossley o.fl., 2016).

Við hverju má búast í fyrsta tíma?

Fyrsti tíminn tekur um 45 mínútur og skiptist í fjóra hluta:

  1. ViðtalVið förum yfir einkennin, sögu þína, vinnu, hreyfingu og hvað þú vilt ná fram.
  2. SkoðunHreyfigeta, styrkur, taugapróf og sérhæfð próf til að finna hvað veldur verknum.
  3. ÁætlunÞú færð skýringu á því hvað veldur verkjunum og við gerum saman áætlun um meðferð og framhald.
  4. MeðferðHandvirk meðferð sniðin að þér: liðlosun, liðkun, mjúkvefjameðferð, nudd, teygjur og dry needling eftir þörfum. Þú færð líka æfingar til að gera heima.

Hvað getur þú gert sjálf(ur)?

  • Minnkaðu tímabundið það álag sem veldur verkjum, án þess að hætta að hreyfa þig
  • Prófaðu hjól eða sund í stað hlaupa um tíma

Hvenær á að leita til læknis?

Leitaðu til læknis eða heilsugæslu ef þú finnur fyrir einhverju af eftirfarandi:

  • Hnéð bólgnar mikið strax eftir áverka
  • Hnéð læsist eða gefur sig ítrekað
  • Heitt, rautt og bólgið hné með hita
  • Hiti, almenn vanlíðan eða þyngdartap án skýringar samhliða verkjunum
  • Verkur eftir slys, fall eða mikinn áverka
  • Stöðugur verkur sem versnar á nóttunni og lagast ekki við hvíld eða breytta stöðu
  • Saga um krabbamein ásamt nýjum verkjum

Í neyð skaltu hringja í 112. Læknavaktin svarar í síma 1700.

Algengar spurningar um hnéverki

Hvað er hlauparahné?

Hlauparahné er samheiti yfir álagsverki í hné hjá hlaupurum, oftast verk framan á hné eða utanvert. Það lagast yfirleitt með álagsstýringu og styrktaræfingum.

Hver er munurinn á hlauparahné og hopparahné?

Hlauparahné lýsir sér oftast sem verkur framan- eða utanvert á hné og tengist hlaupum. Hopparahné er verkur í hnésininni rétt fyrir neðan hnéskelina og tengist hoppum og spyrnum. Hvort tveggja eru álagsmeiðsli sem lagast yfirleitt með álagsstýringu og markvissum æfingum.

Á ég að hætta að hlaupa ef mér er illt í hnénu?

Ekki endilega. Oft er nóg að minnka álagið tímabundið. Í tímanum hjálpum við þér að finna hvað hnéð þolir og byggja upp aftur.

Bókaðu tíma vegna hnéverkja

Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.

Bóka tíma

eða hringdu í 883 2422

Heimildir

  1. Crossley K.M. o.fl. (2016). Patellofemoral pain consensus statement. British Journal of Sports Medicine, 50(14).

Upplýsingarnar á þessari síðu eru almennar og koma ekki í stað skoðunar hjá heilbrigðisstarfsmanni.

Bóka tíma Hringja