Hvað er naprapatía?
Naprapatía er meðferðarform sem greinir og meðhöndlar verki og truflanir í stoðkerfinu, það er vöðvum, liðum, liðböndum og taugum. Naprapati notar handvirka meðferð eins og liðlosun, liðkun, mjúkvefjameðferð, nudd, teygjur og dry needling, ásamt æfingum og ráðgjöf um álag og lífsstíl.
Hvaðan kemur naprapatía?
Naprapatía á rætur sínar í Bandaríkjunum í byrjun 20. aldar en hefur þróast mest á Norðurlöndunum, sérstaklega í Svíþjóð. Þar hefur naprapati verið löggilt heilbrigðisstétt frá 1994 og menntunin er fjögurra ára háskólanám í fullu starfi við Naprapathögskolan í Stokkhólmi.
Námið nær yfir líffærafræði, lífeðlisfræði, sjúkdómafræði, klíníska greiningu, handvirka meðferð, þjálfunarfræði og rannsóknaraðferðir, auk klínískrar þjálfunar með skjólstæðingum.
Hvað meðhöndlar naprapati?
Naprapati meðhöndlar fyrst og fremst verki í vöðvum og liðum, til dæmis bakverki, hálsverki, spennuhöfuðverk, axlarverki, tennisolnboga, kjálkaverki og íþróttameiðsli. Sjá allan listann.
Hvaða aðferðir notar naprapati?
- Liðlosun (hnykkingar): stutt og hröð hreyfing á lið sem getur aukið hreyfigetu og dregið úr verkjum.
- Drop technique: liðlosun á sérstökum bekk þar sem hluti bekkjarins fellur stutta vegalengd, sem gerir meðferðina mýkri.
- Liðkun (mobilisering): rólegar, endurteknar hreyfingar á lið.
- Mjúkvefjameðferð, nudd og triggerpunktameðferð: meðferð á spenntum og aumum vöðvum, vöðvahnútum og bandvef.
- Graston technique: mjúkvefjameðferð með sérhönnuðum stáláhöldum.
- Teygjur: virkar og óvirkar teygjur, til dæmis vöðvaorkutækni.
- Dry needling (nálameðferð): fínum, einnota nálum er stungið í spennta vöðva og vöðvahnúta (triggerpunkta) til að draga úr vöðvaspennu og verkjum.
- Höggbylgjumeðferð: þrýstibylgjur sem eru meðal annars notaðar við þrálátum sinavandamálum, til dæmis tennisolnboga, iljarfellsbólgu og verkjum í hásin.
- TENS/EMS (raförvun): rafstraumur sem getur dregið tímabundið úr verkjum (TENS) eða virkjað vöðva (EMS).
- Æfingar, fræðsla og álagsstýring: heimaæfingar, endurhæfing og ráð um álag og vinnuaðstöðu.
Naprapatía, sjúkraþjálfun og kírópraktík: hver er munurinn?
Allar þrjár stéttirnar meðhöndla stoðkerfisverki og skarast töluvert. Munurinn felst helst í áherslum, menntun og stöðu á Íslandi. Taflan er einföldun; áherslur eru mismunandi eftir meðferðaraðilum.
| Naprapatía | Sjúkraþjálfun | Kírópraktík | |
|---|---|---|---|
| Áhersla | Stoðkerfisverkir: liðir, vöðvar og taugar | Breitt svið hreyfingar og endurhæfingar | Liðir, sérstaklega hryggurinn, og taugakerfið |
| Helstu aðferðir | Handvirk meðferð (liðir og mjúkvefir), dry needling, höggbylgjur, æfingar og ráðgjöf | Æfingar og þjálfun, handvirk meðferð og fræðsla | Liðlosun, aðrar handvirkar aðferðir og æfingar |
| Nám | 4 ár (Svíþjóð) | Háskólanám, á Íslandi við HÍ | Yfirleitt 4–5 ár erlendis |
| Staða á Íslandi | Ekki lögverndað starfsheiti | Löggilt heilbrigðisstétt | Löggilt heilbrigðisstétt |
| Niðurgreiðsla SÍ | Nei | Já, að uppfylltum skilyrðum SÍ | Nei |
| Tilvísun | Ekki þörf | Fer eftir skilyrðum SÍ | Ekki þörf |
[TODO: Leifur staðfesti að upplýsingar í töflunni séu réttar áður en síðan fer í loftið.]
Hvað segja rannsóknir?
Rannsóknir á naprapatíu sjálfri eru fáar en fara vaxandi. Í sænskri slembirannsókn með fólki með bak- og hálsverki dró meira úr verkjum og færniskerðingu hjá þeim sem fengu naprapatíska meðferð en hjá þeim sem fengu hefðbundna ráðgjöf. Munurinn hélst við eftirfylgni (Skillgate o.fl., 2007). Klínískar leiðbeiningar um bak- og hálsverki mæla með æfingum ásamt handvirkri meðferð, og það er grunnurinn í naprapatíu.
Hvað er verkur?
Verkur er ekki alltaf mælikvarði á skemmd. Alþjóðasamtök um rannsóknir á verkjum (IASP) skilgreina verk sem óþægilega skynjun og tilfinningalega upplifun sem tengist, eða líkist því sem tengist, raunverulegri eða mögulegri vefjaskemmd (Raja o.fl., 2020). Verkur getur því verið raunverulegur og mikill þótt engin skemmd sjáist, og svefn, streita og álag hafa áhrif á hann. Þess vegna leggjum við áherslu á fræðslu og hreyfingu, ekki bara á meðferð á bekknum.
Algengar spurningar um naprapatíu
Er naprapatía viðurkennd meðferð?
Í Svíþjóð hefur naprapati verið löggilt heilbrigðisstétt frá árinu 1994 og naprapatar starfa einnig í Noregi og Finnlandi. Á Íslandi er naprapatía ekki enn lögverndað starfsheiti og Embætti landlæknis gefur ekki út starfsleyfi fyrir naprapata. NAPRA starfar með starfsleyfi frá Kópavogsbæ.
Hver er munurinn á naprapata og kírópraktor?
Báðar stéttir nota handvirka meðferð á liði. Naprapatía leggur í meira mæli áherslu á mjúkvefi, það er vöðva og liðbönd, samhliða liðum og æfingum. Áherslur eru þó mismunandi eftir meðferðaraðilum.
Hver er munurinn á naprapata og sjúkraþjálfara?
Sjúkraþjálfarar vinna á breiðu sviði, meðal annars í endurhæfingu eftir aðgerðir, taugasjúkdóma og öndunarvandamál. Naprapatar sérhæfa sig í stoðkerfisverkjum og nota meira handvirka meðferð í hverjum tíma, samhliða æfingum.
Er naprapatía sársaukafull?
Meðferðin getur verið óþægileg á aumum svæðum, en hún er alltaf aðlöguð að þér og þú stjórnar ferðinni. Sumir finna fyrir eymslum í 1–2 daga eftir tíma, svipað og eftir æfingu.
Prófaðu naprapatíu
Fyrsti tími: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð. Engin tilvísun.
Heimildir
- Skillgate E. o.fl. (2007). Naprapathic manual therapy or evidence-based care for back and neck pain: a randomized, controlled trial. Clinical Journal of Pain.
- NICE (2016). Low back pain and sciatica in over 16s (NG59).
- Raja S.N. o.fl. (2020). The revised International Association for the Study of Pain definition of pain: concepts, challenges, and compromises. Pain, 161(9).
- WHO (2023). WHO guideline for non-surgical management of chronic primary low back pain in adults.
- Gattie E., Cleland J.A., Snodgrass S. (2017). The effectiveness of trigger point dry needling for musculoskeletal conditions by physical therapists: a systematic review and meta-analysis. JOSPT, 47(3).
- Naprapathögskolan, Stokkhólmi