Naprapati í Kópavogi

Verkur í mjöðm og rassi

Verkur í mjöðm getur komið frá mjaðmaliðnum sjálfum, frá vöðvum og sinum í kringum hann eða frá mjóbakinu. Rétt greining skiptir því miklu, og flestir mjaðmaverkir lagast með æfingum og meðferð.

Bóka tímaEngin tilvísun · Morgun- og síðdegistímar

Skrifað af Leifur Guðjónsson, naprapata D.N. · Síðast uppfært

Hvað eru mjaðmaverkir?

Mjaðmaverkur getur verið í nára, utanvert á mjöðminni eða í rassinum. Verkur í nára kemur oft frá mjaðmaliðnum sjálfum. Verkur utanvert á mjöðminni stafar oft af álagi á sinar rassvöðva, og verkur í rassi getur komið frá mjóbaki eða mjaðmagrind.

Mjaðmagrindarverkir (PGP) eru algengir á meðgöngu og eftir fæðingu en geta líka komið fram hjá öðrum. Verkirnir eru oft aftan í mjaðmagrind, í nára eða rassvöðvum og versna við göngu. Sjá einnig grindarverki á meðgöngu.

Bólga í rassvöðvafestum (gluteal tendinopathy) veldur verk utan á mjöðm sem getur leitt niður lærið. Algengt er að finna til við göngu, hlaup, stigagöngu eða þegar legið er á hliðinni.

Klemmueinkenni í mjöðm (FAI) verða þegar klemma myndast í mjaðmaliðnum við ákveðnar hreyfingar. Einkennin eru oft verkur í nára, stífleiki og óþægindi við djúpar beygjur, setu eða æfingar.

Algengar orsakir

Algengustu orsakirnar eru álag og venjur í daglegu lífi, sjaldnar alvarlegri ástæður:

  • Langar setur og stífleiki í mjaðmabeygjum
  • Veikleiki í rassvöðvum
  • Hlaup og íþróttir með mikilli aukningu á álagi
  • Slitbreytingar í mjaðmalið, algengara með hækkandi aldri
  • Leiðsla frá mjóbaki

Hvernig nálgast naprapati mjaðmaverki?

Naprapati greinir upptök verkjarins og meðhöndlar með liðkun á mjöðm og mjaðmagrind, mjúkvefjameðferð og stigvaxandi styrktaræfingum. Við slitgigt í mjöðm eru æfingar og fræðsla sú meðferð sem mælt er með fyrst.

Við hverju má búast í fyrsta tíma?

Fyrsti tíminn tekur um 45 mínútur og skiptist í fjóra hluta:

  1. ViðtalVið förum yfir einkennin, sögu þína, vinnu, hreyfingu og hvað þú vilt ná fram.
  2. SkoðunHreyfigeta, styrkur, taugapróf og sérhæfð próf til að finna hvað veldur verknum.
  3. ÁætlunÞú færð skýringu á því hvað veldur verkjunum og við gerum saman áætlun um meðferð og framhald.
  4. MeðferðHandvirk meðferð sniðin að þér: liðlosun, liðkun, mjúkvefjameðferð, nudd, teygjur og dry needling eftir þörfum. Þú færð líka æfingar til að gera heima.

Hvað getur þú gert sjálf(ur)?

  • Forðastu að sitja lengi með krosslagða fætur
  • Styrktu rassvöðvana, til dæmis með brúaræfingum
  • Haltu áfram að ganga og hreyfa þig

Hvenær á að leita til læknis?

Leitaðu til læknis eða heilsugæslu ef þú finnur fyrir einhverju af eftirfarandi:

  • Getur ekki stigið í fótinn eftir fall. Leitaðu á bráðamóttöku.
  • Mikill verkur í mjöðm með hita
  • Hiti, almenn vanlíðan eða þyngdartap án skýringar samhliða verkjunum
  • Verkur eftir slys, fall eða mikinn áverka
  • Stöðugur verkur sem versnar á nóttunni og lagast ekki við hvíld eða breytta stöðu
  • Saga um krabbamein ásamt nýjum verkjum

Í neyð skaltu hringja í 112. Læknavaktin svarar í síma 1700.

Algengar spurningar um mjaðmaverki

Hvernig veit ég hvort verkurinn kemur frá mjöðminni eða bakinu?

Verkur í nára og stirðleiki við að fara í sokka bendir oft á mjöðmina. Verkur í rassi sem breytist við hreyfingu baksins bendir frekar á mjóbakið. Skoðun hjá naprapata getur greint á milli.

Getur naprapati hjálpað við slitgigt í mjöðm?

Já. Æfingar, fræðsla og handvirk meðferð geta dregið úr verkjum og bætt hreyfigetu við slitgigt.

Bókaðu tíma vegna mjaðmaverkja

Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.

Bóka tíma

eða hringdu í 883 2422

Upplýsingarnar á þessari síðu eru almennar og koma ekki í stað skoðunar hjá heilbrigðisstarfsmanni.

Bóka tíma Hringja