Meðferðir og vandamál sem við meðhöndlum

Naprapati meðhöndlar verki og truflanir í vöðvum, liðum og taugum. Hér finnur þú algengustu vandamálin sem fólk leitar til NAPRA með. Ef þitt vandamál er ekki á listanum er þér velkomið að hringja og spyrja.

Bak og mjaðmir

  • Bakverkir

    Verkir í mjóbaki eða brjóstbaki, stirðleiki og álagsverkir.

    Lesa nánar
  • Mjóbaksverkir

    Verkur neðst í baki, oft við setur, beygjur eða þegar staðið er upp.

    Lesa nánar
  • Brjóstbaksverkir

    Stífleiki og verkur milli herðablaða og læsing í rifbeini.

    Lesa nánar
  • Þursabit

    Skyndilegur, sár verkur í mjóbaki sem læsir bakinu.

    Lesa nánar
  • Settaugarbólga

    Leiðsluverkur, dofi eða náladofi frá rassi niður í fót.

    Lesa nánar
  • Mjaðmaverkir

    Verkur í nára, utanverðri mjöðm eða rassi.

    Lesa nánar

Háls, höfuð og kjálki

  • Hálsverkir

    Stirður og aumur háls, hálsrígur og verkur upp í höfuð eða niður í handlegg.

    Lesa nánar
  • Vöðvabólga í herðum

    Stífar, aumar herðar og hnútar í vöðvum milli háls og axla.

    Lesa nánar
  • Höfuðverkir

    Þrýstingur eða band um höfuðið, oft frá hálsi og herðum.

    Lesa nánar
  • Kjálkaverkir

    Verkur, smellir eða læsing í kjálka og tannagnístur.

    Lesa nánar

Axlir, olnbogar og hendur

  • Axlarverkir

    Verkur við að lyfta handlegg, sofa á öxlinni eða við æfingar.

    Lesa nánar
  • Tennisolnbogi

    Verkur utan- eða innanvert á olnboga við grip og lyftur.

    Lesa nánar
  • Verkir í úlnlið og hendi

    Verkur, dofi eða náladofi í úlnlið, hendi eða fingrum.

    Lesa nánar

Hné, ökklar, fætur og íþróttir

  • Hnéverkir

    Verkur framan á hné, í hnéskel eða við hlaup og stiga.

    Lesa nánar
  • Ökklaverkir

    Tognun, óstöðugur ökkli og verkur í hásin.

    Lesa nánar
  • Iljarfellsbólga

    Verkur undir hæl og il, verstur í fyrstu skrefunum.

    Lesa nánar
  • Íþróttameiðsli

    Tognanir, álagsmeiðsli og endurhæfing fyrir hlaupara, lyftara og boltafólk.

    Lesa nánar

Meðganga

Íþróttanudd

Íþróttanudd losar um spennta vöðva og hjálpar við endurheimt. Það hentar bæði íþróttafólki og þeim sem eru með vöðvaspennu vegna vinnu. Nudd er í boði í 30 eða 50 mínútur. Sjá verð.

Meðferðaraðferðir

Auk handvirkrar meðferðar og æfinga notum við meðal annars dry needling, höggbylgjumeðferð og raförvun þegar það á við. Sjá allar aðferðir.

Fyrirtækjaþjónusta

Ég kem í fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og sinni starfsfólki á staðnum. Sjá nánar og fá tilboð.

Viltu láta skoða þetta?

Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.

Bóka tíma

eða hringdu í 883 2422

Bóka tíma Hringja