Naprapati í Kópavogi

Spennuhöfuðverkur og hálstengdur höfuðverkur

Spennuhöfuðverkur er algengasta tegund höfuðverkja og tengist oft spennu í hálsi, herðum og kjálka. Höfuðverkur sem á upptök í hálsinum (hálstengdur höfuðverkur) bregst oft vel við meðferð á hálsi og efri hluta baks.

Bóka tímaEngin tilvísun · Morgun- og síðdegistímar

Skrifað af Leifur Guðjónsson, naprapata D.N. · Síðast uppfært

Hvað eru höfuðverkir?

Spennuhöfuðverkur lýsir sér oft sem þrýstingur, eða eins og þétt band sé um höfuðið, á enni, gagnaugum eða í hnakka. Hann er yfirleitt ekki slagæðakenndur og fylgir honum sjaldnast ógleði.

Hálstengdur höfuðverkur byrjar í hálsinum og leiðir upp í hnakka og stundum fram að auga, oftast öðrum megin. Hann versnar gjarnan við ákveðnar stöður eða hreyfingar á hálsinum.

Mígreni lýsir sér oft sem einhliða, púlserandi höfuðverkur með ljós- og/eða hljóðfælni, þó hann geti líka verið beggja vegna. Á undan kasti getur komið fyrirboði (ára), til dæmis sjóntruflanir eins og stjörnur eða ljósblossar, náladofi, svimi eða taltruflanir. Mígreni kemur oft í kjölfar streitutímabila.

Algengar orsakir

Algengustu orsakirnar eru álag og venjur í daglegu lífi, sjaldnar alvarlegri ástæður:

  • Vöðvaspenna í hálsi, herðum og kjálka
  • Langar setur við skjá
  • Streita, svefnleysi og of lítil vatnsdrykkja
  • Stífleiki í efstu hálsliðum
  • Kjálkaspenna og tannagnístur

Hvernig nálgast naprapati höfuðverki?

Naprapati skoðar háls, herðar og kjálka til að meta hvort þau eigi þátt í höfuðverknum. Meðferðin getur falið í sér mjúkvefjameðferð á hnakka- og herðavöðvum, liðkun á efri hluta hálsins og æfingar fyrir líkamsstöðu og djúpa hálsvöðva.

Naprapati meðhöndlar ekki mígreni sem slíkt, en margir með mígreni eru líka með spennu í hálsi sem getur gert einkennin verri. Ef höfuðverkurinn hefur einkenni sem benda til annarrar orsakar vísum við til læknis.

Við hverju má búast í fyrsta tíma?

Fyrsti tíminn tekur um 45 mínútur og skiptist í fjóra hluta:

  1. ViðtalVið förum yfir einkennin, sögu þína, vinnu, hreyfingu og hvað þú vilt ná fram.
  2. SkoðunHreyfigeta, styrkur, taugapróf og sérhæfð próf til að finna hvað veldur verknum.
  3. ÁætlunÞú færð skýringu á því hvað veldur verkjunum og við gerum saman áætlun um meðferð og framhald.
  4. MeðferðHandvirk meðferð sniðin að þér: liðlosun, liðkun, mjúkvefjameðferð, nudd, teygjur og dry needling eftir þörfum. Þú færð líka æfingar til að gera heima.

Hvað getur þú gert sjálf(ur)?

  • Taktu reglulegar pásur frá skjánum
  • Drekktu nóg vatn og reyndu að halda reglu á svefni
  • Teygðu varlega á hálsi og herðum
  • Haltu höfuðverkjadagbók til að finna mynstur

Hvenær á að leita til læknis?

Leitaðu til læknis eða heilsugæslu ef þú finnur fyrir einhverju af eftirfarandi:

  • Skyndilegur, mjög slæmur höfuðverkur, „sá versti sem ég hef fengið“. Hringdu í 112.
  • Höfuðverkur með hita, stífum hnakka eða útbrotum
  • Höfuðverkur með máttleysi, dofa, rugli eða sjóntruflunum
  • Nýr höfuðverkur eftir fimmtugt sem fer versnandi
  • Hiti, almenn vanlíðan eða þyngdartap án skýringar samhliða verkjunum
  • Verkur eftir slys, fall eða mikinn áverka
  • Stöðugur verkur sem versnar á nóttunni og lagast ekki við hvíld eða breytta stöðu
  • Saga um krabbamein ásamt nýjum verkjum

Í neyð skaltu hringja í 112. Læknavaktin svarar í síma 1700.

Algengar spurningar um höfuðverki

Getur naprapati hjálpað við höfuðverk?

Já, sérstaklega ef höfuðverkurinn tengist spennu í hálsi, herðum eða kjálka. Í fyrsta tíma metum við hvort það eigi við í þínu tilviki.

Hvernig veit ég hvort höfuðverkurinn kemur frá hálsinum?

Vísbendingar eru meðal annars að verkurinn byrjar í hnakka, er oftast öðrum megin, versnar við ákveðnar stöður á hálsinum og fylgir stirðleiki í hálsi. Skoðun hjá naprapata getur staðfest það.

Hvað er munurinn á spennuhöfuðverk og mígreni?

Spennuhöfuðverkur er oftast þrýstingur beggja vegna og versnar ekki við áreynslu. Mígreni er oft slagæðakennt, öðrum megin, með ógleði og ljós- eða hljóðfælni. Ef þú ert óviss er rétt að ræða við lækni.

Bókaðu tíma vegna höfuðverkja

Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.

Bóka tíma

eða hringdu í 883 2422

Heimildir

  1. WHO (2024). Headache disorders – fact sheet.
  2. Blanpied P.R. o.fl. (2017). Neck Pain: Clinical Practice Guidelines. Journal of Orthopaedic & Sports Physical Therapy, 47(7).

Upplýsingarnar á þessari síðu eru almennar og koma ekki í stað skoðunar hjá heilbrigðisstarfsmanni.

Bóka tíma Hringja