Hálsverkir og hálsrígur
Hálsverkir stafa oftast af spennu í vöðvum og ertingu í liðamótum hálsins, til dæmis eftir langa setu við tölvu eða skjá. Flestir hálsverkir lagast vel með handvirkri meðferð og æfingum.
Hvað eru hálsverkir?
Hálsverkir eru verkir og stirðleiki í hálsi og efst í baki, stundum með leiðni upp í höfuð eða út í öxl og handlegg. „Hálsrígur“ er skyndilegur, læstur hálsverkur þar sem erfitt er að snúa höfðinu, oft eftir að hafa sofið í óþægilegri stöðu. Vægari stífleiki eða læsing lýsir sér frekar þannig að erfiðara er að snúa höfðinu í aðra áttina en hina, án mikilla verkja.
Verkir frá brjóski í hálsi, það er útbungun eða brjósklos, geta leitt út í handlegg með dofa eða náladofa í hendi. Einkennin aukast oft við hósta eða hnerra og hreyfigeta hálsins er yfirleitt skert.
Langflestir hálsverkir eru ekki hættulegir, en þeir geta haft mikil áhrif á vinnu, svefn og einbeitingu.
Algengar orsakir
Algengustu orsakirnar eru álag og venjur í daglegu lífi, sjaldnar alvarlegri ástæður:
- Langar setur við tölvu eða símanotkun með höfuðið fram
- Óþægileg svefnstaða eða koddi sem hentar illa
- Streita sem eykur spennu í herða- og hálsvöðvum
- Stífleiki í brjóstbaki sem eykur álag á hálsinn
- Hnykkur eða bílslys (whiplash)
- Útbungun eða brjósklos í hálsi, sem getur valdið leiðni út í handlegg
Hvernig nálgast naprapati hálsverki?
Naprapati skoðar hreyfigetu hálsins, liðamót, vöðva og taugavirkni út í handleggi. Meðferðin byggir á niðurstöðunum og getur falið í sér liðkun og liðlosun á háls og brjóstbak, mjúkvefjameðferð og teygjur á spenntum vöðvum.
Klínískar leiðbeiningar um hálsverki mæla með handvirkri meðferð samhliða æfingum. Þú færð því einfaldar æfingar sem passa inn í vinnudaginn.
Við hverju má búast í fyrsta tíma?
Fyrsti tíminn tekur um 45 mínútur og skiptist í fjóra hluta:
- ViðtalVið förum yfir einkennin, sögu þína, vinnu, hreyfingu og hvað þú vilt ná fram.
- SkoðunHreyfigeta, styrkur, taugapróf og sérhæfð próf til að finna hvað veldur verknum.
- ÁætlunÞú færð skýringu á því hvað veldur verkjunum og við gerum saman áætlun um meðferð og framhald.
- MeðferðHandvirk meðferð sniðin að þér: liðlosun, liðkun, mjúkvefjameðferð, nudd, teygjur og dry needling eftir þörfum. Þú færð líka æfingar til að gera heima.
Hvað getur þú gert sjálf(ur)?
- Hreyfðu hálsinn rólega í allar áttir nokkrum sinnum á dag
- Hafðu skjáinn í augnhæð og fartölvuna á standi
- Taktu stuttar pásur frá skjánum og hreyfðu axlirnar
- Hiti getur slakað á stífum vöðvum
Hvenær á að leita til læknis?
Leitaðu til læknis eða heilsugæslu ef þú finnur fyrir einhverju af eftirfarandi:
- Vaxandi dofi eða máttleysi í handleggjum eða höndum
- Svimi, sjóntruflanir, erfiðleikar við að tala eða kyngja samhliða hálsverk. Leitaðu strax læknis.
- Hálsverkur eftir slys eða fall
- Hiti, almenn vanlíðan eða þyngdartap án skýringar samhliða verkjunum
- Verkur eftir slys, fall eða mikinn áverka
- Stöðugur verkur sem versnar á nóttunni og lagast ekki við hvíld eða breytta stöðu
- Saga um krabbamein ásamt nýjum verkjum
Í neyð skaltu hringja í 112. Læknavaktin svarar í síma 1700.
Algengar spurningar um hálsverki
Hvað er hálsrígur og hvað á að gera?
Hálsrígur er skyndilegur stirðleiki og verkur í hálsi sem gerir erfitt að snúa höfðinu. Mjúkar hreyfingar innan sársaukamarka og hiti hjálpa. Ef það lagast ekki á 2–3 dögum getur meðferð flýtt fyrir bata.
Getur verkur í hálsi leitt út í handlegg?
Já. Erting á taugarót í hálsi, til dæmis vegna útbungunar eða brjóskloss, getur valdið verk, dofa eða náladofa út í handlegg og hönd. Naprapati metur það með taugaprófum og vísar til læknis ef þörf er á.
Getur hálsverkur valdið höfuðverk?
Já. Spenna og erting í efri hluta hálsins getur leitt upp í höfuð. Þetta kallast hálstengdur höfuðverkur (cervicogenic headache) og bregst oft vel við meðferð á hálsinum.
Er óhætt að láta losa hálsinn?
Liðlosun á hálsi er almennt talin örugg þegar hún er framkvæmd af menntuðum meðferðaraðila eftir góða skoðun. Hún er aldrei nauðsynleg; við getum alltaf notað mýkri aðferðir ef þú vilt það frekar.
Hjálpar að skipta um kodda?
Stundum. Koddinn á að halda hálsinum í hlutlausri stöðu, hvorki of hátt né of lágt. Það er sjaldnast eina skýringin en getur skipt máli.
Bókaðu tíma vegna hálsverkja
Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.
Heimildir
- Blanpied P.R. o.fl. (2017). Neck Pain: Clinical Practice Guidelines. Journal of Orthopaedic & Sports Physical Therapy, 47(7).
- Skillgate E., Vingård E., Alfredsson L. (2007). Naprapathic manual therapy or evidence-based care for back and neck pain: a randomized, controlled trial. Clinical Journal of Pain, 23(5).
Upplýsingarnar á þessari síðu eru almennar og koma ekki í stað skoðunar hjá heilbrigðisstarfsmanni.