Naprapati í Kópavogi

Iljarfellsbólga – verkur undir hæl

Iljarfellsbólga (plantar fasciitis) er algengasta orsök verkja undir hæl. Verkurinn er oft verstur í fyrstu skrefunum á morgnana eða eftir langa setu. Hjá flestum lagast hún með álagsstýringu, æfingum og meðferð, þó það geti tekið nokkra mánuði.

Bóka tímaEngin tilvísun · Morgun- og síðdegistímar

Skrifað af Leifur Guðjónsson, naprapata D.N. · Síðast uppfært

Hvað er iljarfellsbólga?

Iljarfellið er sterkur bandvefur sem liggur undir ilinni frá hælnum fram að tánum. Við of mikið álag getur myndast erting þar sem fellið festist við hælbeinið.

Þrátt fyrir nafnið er yfirleitt ekki um eiginlega bólgu að ræða heldur álagsbreytingar í vefnum. Verkurinn er oft verstur í fyrstu skrefunum á morgnana, lagast aðeins við hreyfingu en versnar aftur eftir mikla stöðu eða göngu.

Algengar orsakir

Algengustu orsakirnar eru álag og venjur í daglegu lífi, sjaldnar alvarlegri ástæður:

  • Skyndileg aukning á hlaupum eða göngu
  • Langar stöður á hörðu undirlagi
  • Stífir kálfar og hásin
  • Skór með litlum stuðningi
  • Þyngdaraukning

Hvernig nálgast naprapati iljarfellsbólgu?

Naprapati skoðar fót, ökkla, kálfa og hreyfimynstur. Meðferðin byggir á stigvaxandi álagsæfingum fyrir il og kálfa, teygjum, mjúkvefjameðferð og ráðum um skó og álag. Höggbylgjumeðferð er einnig notuð við þrálátri iljarfellsbólgu.

Við hverju má búast í fyrsta tíma?

Fyrsti tíminn tekur um 45 mínútur og skiptist í fjóra hluta:

  1. ViðtalVið förum yfir einkennin, sögu þína, vinnu, hreyfingu og hvað þú vilt ná fram.
  2. SkoðunHreyfigeta, styrkur, taugapróf og sérhæfð próf til að finna hvað veldur verknum.
  3. ÁætlunÞú færð skýringu á því hvað veldur verkjunum og við gerum saman áætlun um meðferð og framhald.
  4. MeðferðHandvirk meðferð sniðin að þér: liðlosun, liðkun, mjúkvefjameðferð, nudd, teygjur og dry needling eftir þörfum. Þú færð líka æfingar til að gera heima.

Hvað getur þú gert sjálf(ur)?

  • Teygðu á kálfa og il áður en þú stígur fyrstu skrefin á morgnana
  • Rúllaðu ilinni yfir bolta eða kalda flösku
  • Notaðu skó með góðum stuðningi og forðastu að ganga berfætt(ur) á hörðu gólfi
  • Minnkaðu hlaup tímabundið og veldu frekar hjól eða sund

Hvenær á að leita til læknis?

Leitaðu til læknis eða heilsugæslu ef þú finnur fyrir einhverju af eftirfarandi:

  • Verkur undir hæl eftir fall eða stökk
  • Dofi eða bruni í ilinni
  • Rauður, heitur og bólginn fótur
  • Hiti, almenn vanlíðan eða þyngdartap án skýringar samhliða verkjunum
  • Verkur eftir slys, fall eða mikinn áverka
  • Stöðugur verkur sem versnar á nóttunni og lagast ekki við hvíld eða breytta stöðu
  • Saga um krabbamein ásamt nýjum verkjum

Í neyð skaltu hringja í 112. Læknavaktin svarar í síma 1700.

Algengar spurningar um iljarfellsbólgu

Hvað tekur iljarfellsbólga langan tíma að lagast?

Hjá flestum lagast hún á nokkrum mánuðum með markvissum æfingum og álagsstýringu. Því fyrr sem byrjað er, því betra.

Hjálpa innlegg við iljarfellsbólgu?

Innlegg eða hælpúðar geta létt á hjá sumum til skamms tíma, en æfingar fyrir il og kálfa skipta meira máli til lengri tíma.

Má ég hlaupa með iljarfellsbólgu?

Oft má halda áfram í minna magni ef verkurinn er vægur og versnar ekki daginn eftir. Við hjálpum þér að finna hvað fóturinn þolir.

Bókaðu tíma vegna iljarfellsbólgu

Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.

Bóka tíma

eða hringdu í 883 2422

Upplýsingarnar á þessari síðu eru almennar og koma ekki í stað skoðunar hjá heilbrigðisstarfsmanni.

Bóka tíma Hringja