Naprapati í Kópavogi

Verkur í öxl

Flestir axlarverkir stafa af álagi á sinar og vöðva í axlarhulsunni (rotator cuff) eða af ertingu í liðamótum axlarinnar. Markvissar æfingar eru lykilatriði í meðferð, og handvirk meðferð getur flýtt fyrir bata.

Bóka tímaEngin tilvísun · Morgun- og síðdegistímar

Skrifað af Leifur Guðjónsson, naprapata D.N. · Síðast uppfært

Hvað eru axlarverkir?

Verkur í öxl getur verið framan, ofan eða utan á öxlinni og leitt niður í upphandlegg. Algengt er að verkurinn komi þegar handleggnum er lyft upp eða út, þegar teygt er aftur fyrir bak eða þegar sofið er á öxlinni.

Algengar greiningar eru álagseinkenni í sinum axlarhulsunnar, klemmueinkenni (impingement), frosin öxl og verkir frá hálsi sem leiða út í öxl.

Klemmueinkenni í öxl eru meðal algengustu orsaka axlarverkja. Þau verða þegar sinar eða slímsekkur í öxlinni klemmast eða verða fyrir auknu álagi við ákveðnar hreyfingar. Algengt er að finna til við að lyfta handleggnum út frá líkamanum eða yfir höfuð, teygja sig eftir hlutum eða liggja á öxlinni.

Frosin öxl einkennist af verkjum og skertri hreyfigetu og skiptist yfirleitt í þrjá fasa: frystifasa (3–9 mánuðir) með miklum verkjum og hreyfiskerðingu, frosinn fasa (6–12 mánuðir) þar sem verkirnir minnka en hreyfigetan er áfram skert, og þíðufasa (12 mánuðir eða lengur) þar sem hreyfigetan eykst hægt og rólega. Segja má að liðpokinn fari úr því að vera vínber í rúsínu og svo aftur í vínber.

Algengar orsakir

Algengustu orsakirnar eru álag og venjur í daglegu lífi, sjaldnar alvarlegri ástæður:

  • Endurtekin vinna eða æfingar með handlegginn yfir höfuð
  • Skyndileg aukning á álagi, til dæmis í ræktinni eða við málningu
  • Veikleiki í vöðvum í kringum herðablaðið
  • Stífleiki í brjóstbaki
  • Leiðsla frá hálsi

Hvernig nálgast naprapati axlarverki?

Naprapati greinir axlarverki með skoðun á hreyfigetu, styrk og sérhæfðum prófum og metur hvort hálsinn eigi hlut að máli. Meðferðin byggir á stigvaxandi æfingum fyrir öxl og herðablað, ásamt liðkun og mjúkvefjameðferð til að minnka verki og auka hreyfigetu.

Við hverju má búast í fyrsta tíma?

Fyrsti tíminn tekur um 45 mínútur og skiptist í fjóra hluta:

  1. ViðtalVið förum yfir einkennin, sögu þína, vinnu, hreyfingu og hvað þú vilt ná fram.
  2. SkoðunHreyfigeta, styrkur, taugapróf og sérhæfð próf til að finna hvað veldur verknum.
  3. ÁætlunÞú færð skýringu á því hvað veldur verkjunum og við gerum saman áætlun um meðferð og framhald.
  4. MeðferðHandvirk meðferð sniðin að þér: liðlosun, liðkun, mjúkvefjameðferð, nudd, teygjur og dry needling eftir þörfum. Þú færð líka æfingar til að gera heima.

Hvað getur þú gert sjálf(ur)?

  • Haltu öxlinni á hreyfingu innan sársaukamarka
  • Minnkaðu tímabundið það álag sem veldur verknum, en ekki hætta alveg að nota handlegginn
  • Prófaðu að sofa með kodda undir handleggnum

Hvenær á að leita til læknis?

Leitaðu til læknis eða heilsugæslu ef þú finnur fyrir einhverju af eftirfarandi:

  • Getur ekki lyft handleggnum eftir fall eða áverka
  • Verkur í vinstri öxl ásamt verk fyrir brjósti eða mæði. Hringdu í 112.
  • Hiti, almenn vanlíðan eða þyngdartap án skýringar samhliða verkjunum
  • Verkur eftir slys, fall eða mikinn áverka
  • Stöðugur verkur sem versnar á nóttunni og lagast ekki við hvíld eða breytta stöðu
  • Saga um krabbamein ásamt nýjum verkjum

Í neyð skaltu hringja í 112. Læknavaktin svarar í síma 1700.

Algengar spurningar um axlarverki

Af hverju er mér illt í öxlinni þegar ég lyfti handleggnum?

Algengasta skýringin er álag á sinar í axlarhulsunni sem ertast þegar handleggnum er lyft. Með markvissum æfingum og réttri álagsstýringu lagast það oftast.

Get ég haldið áfram að æfa með verk í öxl?

Oftast já, með breytingum. Við hjálpum þér að finna hvaða æfingar má halda áfram með og hverju þarf að breyta tímabundið.

Hvað er frosin öxl?

Frosin öxl er ástand þar sem liðpokinn í öxlinni stífnar og hreyfigetan minnkar mikið, oft með miklum verkjum. Hún gengur yfir á mánuðum og meðferð miðar að því að viðhalda hreyfigetu og draga úr verkjum.

Bókaðu tíma vegna axlarverkja

Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.

Bóka tíma

eða hringdu í 883 2422

Upplýsingarnar á þessari síðu eru almennar og koma ekki í stað skoðunar hjá heilbrigðisstarfsmanni.

Bóka tíma Hringja