Naprapati í Kópavogi

Tennisolnbogi og golfolnbogi

Tennisolnbogi er álagsverkur í sininni utanvert á olnboganum og er algengur hjá fólki sem notar mús, lyklaborð eða verkfæri mikið, ekki bara hjá tennisspilurum. Hann lagast oftast með álagsstýringu, æfingum og handvirkri meðferð.

Bóka tímaEngin tilvísun · Morgun- og síðdegistímar

Skrifað af Leifur Guðjónsson, naprapata D.N. · Síðast uppfært

Hvað er tennisolnbogi?

Tennisolnbogi (lateral epicondylalgia) lýsir sér sem verkur utanvert á olnboganum sem versnar við grip, þegar lyft er með lófann niður eða snúið er, til dæmis þegar haldið er á kaffibolla. Golfolnbogi er sams konar vandamál innanvert á olnboganum.

Algengar orsakir

Algengustu orsakirnar eru álag og venjur í daglegu lífi, sjaldnar alvarlegri ástæður:

  • Endurtekið grip og hreyfingar í úlnlið, til dæmis tölvumús, verkfæri eða spaðaíþróttir
  • Skyndileg aukning á álagi
  • Spenna í framhandleggsvöðvum
  • Stundum tengsl við háls og efri hluta baks

Hvernig nálgast naprapati tennisolnboga?

Naprapati meðhöndlar tennisolnboga með álagsstýrðum styrktaræfingum, mjúkvefjameðferð á framhandlegg og liðkun á olnboga (mobilisation with movement). Markmiðið er að létta á einkennum og stýra álaginu á meðan sinin jafnar sig.

Rannsóknir benda til hóflegs ávinnings. Samkvæmt Cochrane-yfirliti geta handvirk meðferð og æfingar dregið lítillega úr verkjum og færniskerðingu við lok meðferðar, en vissan er lítil og áhrifin haldast ekki endilega til lengri tíma (Wallis o.fl., 2024). Tennisolnbogi lagast líka oft af sjálfu sér með tímanum.

Við skoðum líka vinnuaðstöðu, grip og hálsinn.

Við hverju má búast í fyrsta tíma?

Fyrsti tíminn tekur um 45 mínútur og skiptist í fjóra hluta:

  1. ViðtalVið förum yfir einkennin, sögu þína, vinnu, hreyfingu og hvað þú vilt ná fram.
  2. SkoðunHreyfigeta, styrkur, taugapróf og sérhæfð próf til að finna hvað veldur verknum.
  3. ÁætlunÞú færð skýringu á því hvað veldur verkjunum og við gerum saman áætlun um meðferð og framhald.
  4. MeðferðHandvirk meðferð sniðin að þér: liðlosun, liðkun, mjúkvefjameðferð, nudd, teygjur og dry needling eftir þörfum. Þú færð líka æfingar til að gera heima.

Hvað getur þú gert sjálf(ur)?

  • Minnkaðu tímabundið það grip sem veldur verkjum
  • Lyftu með lófann upp frekar en niður
  • Prófaðu lóðrétta mús eða aðra uppsetningu á vinnustöðinni

Hvenær á að leita til læknis?

Leitaðu til læknis eða heilsugæslu ef þú finnur fyrir einhverju af eftirfarandi:

  • Hiti, almenn vanlíðan eða þyngdartap án skýringar samhliða verkjunum
  • Verkur eftir slys, fall eða mikinn áverka
  • Stöðugur verkur sem versnar á nóttunni og lagast ekki við hvíld eða breytta stöðu
  • Saga um krabbamein ásamt nýjum verkjum

Í neyð skaltu hringja í 112. Læknavaktin svarar í síma 1700.

Algengar spurningar um tennisolnboga

Hvað tekur tennisolnbogi langan tíma að lagast?

Tennisolnbogi getur verið þrálátur, en hjá flestum lagast hann með tímanum, oft innan árs. Meðferð og æfingar miða að því að létta á einkennum og stýra álaginu á meðan.

Fær maður tennisolnboga af tölvuvinnu?

Já, það er algengt. Endurtekið grip um mús og vélritun getur valdið álagi á sinarnar utanvert á olnboganum.

Á ég að nota olnbogaspelku?

Spelka getur létt á álaginu hjá sumum. Hún kemur þó ekki í stað æfinga sem byggja upp þol sinarinnar.

Bókaðu tíma vegna tennisolnboga

Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.

Bóka tíma

eða hringdu í 883 2422

Heimildir

  1. Wallis J.A. o.fl. (2024). Manual therapy and exercise for lateral elbow pain. Cochrane Database of Systematic Reviews.
  2. Bisset L. o.fl. (2006). Mobilisation with movement and exercise, corticosteroid injection, or wait and see for tennis elbow. BMJ, 333(7575).

Upplýsingarnar á þessari síðu eru almennar og koma ekki í stað skoðunar hjá heilbrigðisstarfsmanni.

Bóka tíma Hringja