Settaugarbólga – verkur sem leiðir niður í fót
Settaugarbólga (sciatica) er verkur sem leiðir frá mjóbaki eða rassi niður aftanvert lærið og stundum alla leið niður í fót. Hún stafar af ertingu í settauginni eða taugarótum hennar og lagast oftast með tímanum og réttri meðferð.
Hvað er settaugarbólga?
Settaugin (nervus ischiadicus) er stærsta taug líkamans. Hún liggur frá mjóbakinu, gegnum rassinn og niður fótinn. Ef taugin eða taugaræturnar ertast getur komið leiðsluverkur, dofi, náladofi eða brunatilfinning niður í fót.
Orðið „settaugarbólga“ er í raun lýsing á einkennum frekar en sjúkdómsgreining. Mikilvægt er að finna hvað veldur ertingunni.
Algengar orsakir
Algengustu orsakirnar eru álag og venjur í daglegu lífi, sjaldnar alvarlegri ástæður:
- Brjósklos í lendhrygg sem þrýstir á taugarót
- Þrenging í mænugangi eða taugaopum, algengara hjá eldra fólki
- Spenna í djúpum rassvöðvum, til dæmis perulaga vöðvanum (piriformis)
- Erting í mjaðmagrindarlið eða smáliðum hryggjar sem getur valdið svipuðum leiðsluverk
Hvernig nálgast naprapati settaugarbólgu?
Naprapati byrjar á ítarlegri skoðun, þar á meðal taugaprófum (kraftur, skyn og viðbrögð), til að meta hvort taug sé klemmd og hvaðan einkennin koma.
Meðferðin getur falið í sér liðkun á lendhrygg, mjúkvefjameðferð á rassvöðvum, taugahreyfiæfingar (nerve gliding) og æfingar sem létta á tauginni. Ef einkennin benda til verulegs þrýstings á taug vísum við þér til læknis.
Við hverju má búast í fyrsta tíma?
Fyrsti tíminn tekur um 45 mínútur og skiptist í fjóra hluta:
- ViðtalVið förum yfir einkennin, sögu þína, vinnu, hreyfingu og hvað þú vilt ná fram.
- SkoðunHreyfigeta, styrkur, taugapróf og sérhæfð próf til að finna hvað veldur verknum.
- ÁætlunÞú færð skýringu á því hvað veldur verkjunum og við gerum saman áætlun um meðferð og framhald.
- MeðferðHandvirk meðferð sniðin að þér: liðlosun, liðkun, mjúkvefjameðferð, nudd, teygjur og dry needling eftir þörfum. Þú færð líka æfingar til að gera heima.
Hvað getur þú gert sjálf(ur)?
- Finndu stöður sem minnka leiðsluverkinn. Oft hjálpar að breyta reglulega um stöðu
- Stuttar göngur eru yfirleitt betri en langar setur
- Forðastu teygjur sem auka leiðsluverkinn niður í fót
Hvenær á að leita til læknis?
Leitaðu til læknis eða heilsugæslu ef þú finnur fyrir einhverju af eftirfarandi:
- Dofi í klofi eða við endaþarm, eða erfiðleikar við að stjórna þvagi eða hægðum. Leitaðu strax á bráðamóttöku.
- Vaxandi máttleysi í fæti, til dæmis fallfótur
- Leiðsluverkur í báðum fótum
- Hiti, almenn vanlíðan eða þyngdartap án skýringar samhliða verkjunum
- Verkur eftir slys, fall eða mikinn áverka
- Stöðugur verkur sem versnar á nóttunni og lagast ekki við hvíld eða breytta stöðu
- Saga um krabbamein ásamt nýjum verkjum
Í neyð skaltu hringja í 112. Læknavaktin svarar í síma 1700.
Algengar spurningar um settaugarbólgu
Hvað er settaugarbólga lengi að lagast?
Þegar brjósklos liggur að baki lagast einkennin hjá 60–80% á 6–12 vikum og hjá 80–90% til lengri tíma (Kögl o.fl., 2024). Brjósklosið sjálft minnkar eða hverfur líka oft af sjálfu sér, oftast innan 6 mánaða (Zou o.fl., 2024).
Þarf ég aðgerð vegna brjóskloss?
Yfirleitt ekki. Leiðbeiningar mæla með 6–12 vikna meðferð án aðgerðar ef ekki eru veruleg taugaeinkenni. Aðgerð kemur til greina ef verkir versna eða máttleysi eykst. Truflun á stjórn þvags eða hægða er bráðatilvik og þá á að leita strax á bráðamóttöku (Kögl o.fl., 2024).
Getur naprapati meðhöndlað settaugarbólgu?
Já. Naprapati getur greint líklega orsök, meðhöndlað liði og vöðva sem eiga hlut að máli og kennt þér æfingar sem létta á tauginni. Ef ástæða er til vísum við áfram til læknis.
Er settaugarbólga það sama og brjósklos?
Nei. Brjósklos er ein algengasta orsök settaugarbólgu, en leiðsluverkur í fót getur líka komið frá vöðvum, liðum eða þrengingum.
Bókaðu tíma vegna settaugarbólgu
Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.
Heimildir
- Kögl N. o.fl. (2024). Lumbar disc herniation – the significance of symptom duration for the indication for surgery. Deutsches Ärzteblatt International.
- Zou T. o.fl. (2024). Incidence of spontaneous resorption of lumbar disc herniation: a meta-analysis. Clinical Spine Surgery, 37(6).
- NICE (2016, uppfært 2020). Low back pain and sciatica in over 16s: assessment and management (NG59).
Upplýsingarnar á þessari síðu eru almennar og koma ekki í stað skoðunar hjá heilbrigðisstarfsmanni.