Þursabit – skyndilegur verkur í mjóbaki
Þursabit er skyndilegur og oft mjög sár verkur í mjóbaki sem kemur gjarnan við einfalda hreyfingu, eins og að beygja sig eða lyfta. Það er sjaldnast hættulegt og flestir ná sér á nokkrum dögum til vikum.
Hvað er þursabit?
Þursabit, einnig kallað tak (á ensku „lumbago“ eða „acute low back pain“) er skyndilegur mjóbaksverkur. Oft fylgir honum mikill vöðvakrampi sem gerir erfitt að rétta úr sér, snúa sér í rúminu eða standa upp.
Þó að verkurinn geti verið mjög mikill er yfirleitt ekki um skemmd að ræða. Verkurinn er varnarviðbragð líkamans við ertingu í liðum, vöðvum eða liðböndum í mjóbakinu.
Algengar orsakir
Algengustu orsakirnar eru álag og venjur í daglegu lífi, sjaldnar alvarlegri ástæður:
- Beygja eða snúningur með álagi, til dæmis við að lyfta barni, töskum eða þvottakörfu
- Þreyta og uppsafnað álag eftir langar setur
- Kuldi og stífleiki, til dæmis á morgnana
- Saga um fyrri þursabit
Hvernig nálgast naprapati þursabit?
Á bráðastigi þursabits miðar meðferð naprapata að því að draga úr vöðvakrampa og verkjum svo þú getir hreyft þig sem fyrst. Mjúk liðkun, mjúkvefjameðferð og ráð um stöður og hreyfingu eru oftast í forgrunni.
Þegar verstu verkirnir eru gengnir yfir er áherslan á að byggja upp styrk og hreyfigetu til að minnka líkurnar á því að þursabitið komi aftur.
Við hverju má búast í fyrsta tíma?
Fyrsti tíminn tekur um 45 mínútur og skiptist í fjóra hluta:
- ViðtalVið förum yfir einkennin, sögu þína, vinnu, hreyfingu og hvað þú vilt ná fram.
- SkoðunHreyfigeta, styrkur, taugapróf og sérhæfð próf til að finna hvað veldur verknum.
- ÁætlunÞú færð skýringu á því hvað veldur verkjunum og við gerum saman áætlun um meðferð og framhald.
- MeðferðHandvirk meðferð sniðin að þér: liðlosun, liðkun, mjúkvefjameðferð, nudd, teygjur og dry needling eftir þörfum. Þú færð líka æfingar til að gera heima.
Hvað getur þú gert sjálf(ur)?
- Reyndu að hreyfa þig rólega. Stuttar göngur eru betri en að liggja allan daginn
- Finndu stöðu sem léttir á, til dæmis að liggja á bakinu með fæturna upp á stól
- Hiti getur slakað á vöðvakrampanum
- Verkjalyf án lyfseðils geta hjálpað. Fylgdu leiðbeiningum á umbúðum eða ráðfærðu þig við lyfjafræðing
Hvenær á að leita til læknis?
Leitaðu til læknis eða heilsugæslu ef þú finnur fyrir einhverju af eftirfarandi:
- Dofi í klofi eða við endaþarm, eða erfiðleikar við að stjórna þvagi eða hægðum. Leitaðu strax á bráðamóttöku.
- Verkur sem leiðir niður fyrir hné ásamt dofa eða máttleysi
- Hiti, almenn vanlíðan eða þyngdartap án skýringar samhliða verkjunum
- Verkur eftir slys, fall eða mikinn áverka
- Stöðugur verkur sem versnar á nóttunni og lagast ekki við hvíld eða breytta stöðu
- Saga um krabbamein ásamt nýjum verkjum
Í neyð skaltu hringja í 112. Læknavaktin svarar í síma 1700.
Algengar spurningar um þursabit
Hvað á ég að gera þegar ég fæ þursabit?
Haltu áfram að hreyfa þig rólega innan sársaukamarka, notaðu hita og finndu stöður sem létta á. Ef verkurinn lagast ekki á nokkrum dögum, eða ef þú þarft að komast fljótt af stað, getur meðferð hjá naprapata hjálpað.
Hvað er þursabit lengi að lagast?
Flestir finna verulegan bata á 1–2 vikum og eru orðnir góðir innan 6 vikna. Sumir fá þó endurtekin þursabit, og þá er gagnlegt að vinna markvisst með styrk og hreyfigetu.
Er í lagi að fara í meðferð strax á fyrsta degi?
Já. Meðferðin er þá mjúk og miðar að því að slaka á vöðvakrampa og koma þér af stað. Hún er aðlöguð að því hversu sár verkurinn er.
Af hverju heitir þetta þursabit?
Nafnið kemur úr þjóðtrú: þegar maður festist skyndilega í bakinu var sagt að þurs, eins konar tröll, hefði bitið hann.
Bókaðu tíma vegna þursabits
Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.
Heimildir
Upplýsingarnar á þessari síðu eru almennar og koma ekki í stað skoðunar hjá heilbrigðisstarfsmanni.