Bakverkir – greining og meðferð
Flestir bakverkir stafa af álagi á vöðva, liði og liðbönd í bakinu og lagast með réttri meðferð og hreyfingu. Hjá NAPRA finnum við hvað veldur verknum og búum til áætlun sem kemur þér aftur af stað.
Hvað eru bakverkir?
Bakverkir eru verkir eða stirðleiki einhvers staðar í bakinu, oftast í mjóbaki en líka í brjóstbaki á milli herðablaðanna. Bakverkir eru ein algengasta ástæða þess að fólk leitar til heilbrigðisstarfsfólks og flestir fá þá einhvern tíma á ævinni.
Í um 90% tilvika eru bakverkir svokallaðir ósértækir bakverkir, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO). Það þýðir að þeir stafa ekki af alvarlegum sjúkdómi heldur af álagi á vöðva, liðamót og liðbönd. Slíkir verkir geta verið mjög sárir en eru sjaldnast hættulegir.
Algengar orsakir
Algengustu orsakirnar eru álag og venjur í daglegu lífi, sjaldnar alvarlegri ástæður:
- Langar setur, til dæmis við skrifborð eða í bíl, og lítil hreyfing yfir daginn
- Óvanalegt eða mikið álag, til dæmis við burð, garðvinnu eða flutninga
- Stífleiki í mjöðmum og brjóstbaki sem eykur álag á mjóbakið
- Veikir eða þreyttir vöðvar í kvið, rassi og baki
- Streita og svefnleysi, sem auka vöðvaspennu og næmi fyrir verkjum
- Brjósklos eða þrenging, þó það sé mun sjaldgæfari orsök en flestir halda
Hvernig nálgast naprapati bakverki?
Naprapati nálgast bakverki með því að skoða bakið sem hluta af heild: liðamót, vöðva, taugar og hreyfimynstur. Fyrst er tekið viðtal og gerð skoðun til að útiloka alvarlegar orsakir og finna hvaða byggingar valda verknum.
Meðferðin er sniðin að þér og getur falið í sér liðlosun og liðkun (mobilisering) á hrygg og mjaðmagrind, mjúkvefjameðferð og nudd á spennta vöðva, teygjur og ráðleggingar um æfingar. Klínískar leiðbeiningar mæla með hreyfingu og æfingum sem grunni í meðferð bakverkja og með handvirkri meðferð samhliða þeim. Þannig vinnum við líka.
Í sænskri slembirannsókn sem bar saman naprapatíska meðferð og hefðbundna ráðgjöf við bak- og hálsverkjum dró meira úr verkjum og færniskerðingu í hópnum sem fékk naprapatíska meðferð (Skillgate o.fl., 2007).
Við hverju má búast í fyrsta tíma?
Fyrsti tíminn tekur um 45 mínútur og skiptist í fjóra hluta:
- ViðtalVið förum yfir einkennin, sögu þína, vinnu, hreyfingu og hvað þú vilt ná fram.
- SkoðunHreyfigeta, styrkur, taugapróf og sérhæfð próf til að finna hvað veldur verknum.
- ÁætlunÞú færð skýringu á því hvað veldur verkjunum og við gerum saman áætlun um meðferð og framhald.
- MeðferðHandvirk meðferð sniðin að þér: liðlosun, liðkun, mjúkvefjameðferð, nudd, teygjur og dry needling eftir þörfum. Þú færð líka æfingar til að gera heima.
Hvað getur þú gert sjálf(ur)?
- Haltu áfram að hreyfa þig innan sársaukamarka. Löng rúmlega seinkar oftast bata
- Stuttar gönguferðir nokkrum sinnum á dag gera oft meira gagn en ein löng
- Brjóttu upp langar setur á 30–45 mínútna fresti
- Hiti, til dæmis heit sturta eða hitapoki, getur slakað á spenntum vöðvum
Hvenær á að leita til læknis?
Leitaðu til læknis eða heilsugæslu ef þú finnur fyrir einhverju af eftirfarandi:
- Dofi í klofi eða við endaþarm, eða nýtilkomnir erfiðleikar við að stjórna þvagi eða hægðum. Leitaðu strax á bráðamóttöku.
- Vaxandi máttleysi í fæti eða fótum
- Hiti, almenn vanlíðan eða þyngdartap án skýringar samhliða verkjunum
- Verkur eftir slys, fall eða mikinn áverka
- Stöðugur verkur sem versnar á nóttunni og lagast ekki við hvíld eða breytta stöðu
- Saga um krabbamein ásamt nýjum verkjum
Í neyð skaltu hringja í 112. Læknavaktin svarar í síma 1700.
Algengar spurningar um bakverki
Hvenær ætti ég að fara til naprapata vegna bakverkja?
Ef verkurinn hefur staðið lengur en í nokkra daga, truflar svefn eða vinnu, eða kemur aftur og aftur er gott að láta skoða hann. Ekki þarf tilvísun frá lækni.
Hvað tekur langan tíma að losna við bakverki?
Margir finna mun eftir 1–3 tíma, en það fer eftir orsökinni og hversu lengi verkurinn hefur staðið. Skyndilegir bakverkir lagast oft á nokkrum vikum, en langvinnir verkir þurfa yfirleitt lengri tíma og markvissar æfingar. Eftir fyrsta tíma færðu mat á því hvers má vænta í þínu tilviki.
Á ég að hvíla mig eða hreyfa mig þegar ég er með bakverk?
Í flestum tilvikum er betra að hreyfa sig. Rannsóknir sýna að fólk sem heldur áfram hóflegri hreyfingu nær sér yfirleitt hraðar en þeir sem liggja fyrir. Forðastu þó það sem eykur verkinn verulega.
Þarf ég myndgreiningu (röntgen eða segulómun) vegna bakverkja?
Yfirleitt ekki. Klínískar leiðbeiningar mæla ekki með myndgreiningu við venjulegum bakverkjum nema grunur sé um alvarlega orsök. Breytingar sem sjást á myndum eru auk þess mjög algengar hjá fólki sem finnur ekki til: í yfirlitsrannsókn sáust útbunganir á hryggþófum hjá um 30% verkjalausra tvítugra og 84% verkjalausra áttræðra (Brinjikji o.fl., 2015). Slíkar breytingar skýra því ekki endilega verkinn. Ef skoðunin bendir til alvarlegrar orsakar vísum við þér til læknis.
Get ég farið til naprapata ef ég er með brjósklos?
Já, oftast. Mörgum með brjósklos líður betur með handvirkri meðferð og æfingum. Við aðlögum meðferðina að einkennum þínum og vísum til læknis ef einkennin benda til þrýstings á taugar sem þarf að skoða nánar. Brjósklos gengur líka oft til baka af sjálfu sér: í safngreiningu minnkaði eða hvarf brjósklosið hjá um 70% þeirra sem fengu meðferð án aðgerðar, oftast innan 6 mánaða (Zou o.fl., 2024).
Bókaðu tíma vegna bakverkja
Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.
Heimildir
- WHO (2023). Low back pain – fact sheet.
- NICE (2016, uppfært 2020). Low back pain and sciatica in over 16s: assessment and management (NG59).
- Hartvigsen J. o.fl. (2018). What low back pain is and why we need to pay attention. The Lancet, 391(10137).
- Brinjikji W. o.fl. (2015). Systematic literature review of imaging features of spinal degeneration in asymptomatic populations. AJNR American Journal of Neuroradiology, 36(4).
- Zou T. o.fl. (2024). Incidence of spontaneous resorption of lumbar disc herniation: a meta-analysis. Clinical Spine Surgery, 37(6).
- Skillgate E., Vingård E., Alfredsson L. (2007). Naprapathic manual therapy or evidence-based care for back and neck pain: a randomized, controlled trial. Clinical Journal of Pain, 23(5).
Upplýsingarnar á þessari síðu eru almennar og koma ekki í stað skoðunar hjá heilbrigðisstarfsmanni.