Naprapati í Kópavogi

Verkir í brjóstbaki og rifbeinum

Verkir og stífleiki í brjóstbaki, milli herðablaðanna, eru algengir hjá þeim sem sitja mikið eða vinna við tölvu. Oftast stafa þeir af stífleika í liðum hryggjar og rifbeina og spennu í vöðvum, og bregðast vel við meðferð og hreyfingu.

Bóka tímaEngin tilvísun · Morgun- og síðdegistímar

Skrifað af Leifur Guðjónsson, naprapata D.N. · Síðast uppfært

Hvað eru brjóstbaksverkir?

Stífleiki eða læsing í brjóstbaki lýsir sér sem stífleiki og þreyta í efra baki, takmörkuð hreyfigeta, verkir milli herðablaðanna og stundum óþægindi við djúpa öndun.

Læsing í rifbeini getur valdið verk eða óþægindum við inn- og útöndun, hósta eða ákveðnar hreyfingar. Verkurinn er oft staðbundinn og getur verið stingandi eða skarpur.

Verkir frá brjóski í brjóstbaki geta stafað af útbungun eða álagi á brjósk. Einkennin lýsa sér oft sem leiðni eftir rifbeinunum og aukinn verkur við hósta eða hnerra, ásamt stífleika og skertri hreyfigetu.

Algengar orsakir

Algengustu orsakirnar eru álag og venjur í daglegu lífi, sjaldnar alvarlegri ástæður:

  • Langar setur og tölvuvinna með axlirnar fram
  • Snúningur eða rangt átak, til dæmis við burð eða í íþróttum
  • Lítil hreyfing í brjóstbaki, sem eykur álag á háls og mjóbak
  • Streita og grunn öndun

Hvernig nálgast naprapati brjóstbaksverki?

Naprapati skoðar hreyfigetu brjóstbaks og rifbeina, ásamt hálsi og öxlum, og útilokar að verkurinn eigi sér aðrar orsakir. Meðferðin getur falið í sér liðlosun á brjóstbak og rifbein, mjúkvefjameðferð, dry needling og æfingar fyrir hreyfigetu og öndun.

Við hverju má búast í fyrsta tíma?

Fyrsti tíminn tekur um 45 mínútur og skiptist í fjóra hluta:

  1. ViðtalVið förum yfir einkennin, sögu þína, vinnu, hreyfingu og hvað þú vilt ná fram.
  2. SkoðunHreyfigeta, styrkur, taugapróf og sérhæfð próf til að finna hvað veldur verknum.
  3. ÁætlunÞú færð skýringu á því hvað veldur verkjunum og við gerum saman áætlun um meðferð og framhald.
  4. MeðferðHandvirk meðferð sniðin að þér: liðlosun, liðkun, mjúkvefjameðferð, nudd, teygjur og dry needling eftir þörfum. Þú færð líka æfingar til að gera heima.

Hvað getur þú gert sjálf(ur)?

  • Snúðu efri hluta líkamans rólega til beggja hliða í sitjandi stöðu nokkrum sinnum á dag
  • Teygðu úr brjóstbakinu yfir stólbak eða á rúllu
  • Andaðu djúpt niður í kvið og út til hliðanna
  • Brjóttu upp langar setur

Hvenær á að leita til læknis?

Leitaðu til læknis eða heilsugæslu ef þú finnur fyrir einhverju af eftirfarandi:

  • Verkur fyrir brjósti með mæði, svita, ógleði eða leiðni út í vinstri handlegg eða kjálka. Hringdu strax í 112.
  • Skyndilegur, mjög mikill verkur milli herðablaðanna sem líkist ekki fyrri verkjum
  • Hiti, almenn vanlíðan eða þyngdartap án skýringar samhliða verkjunum
  • Verkur eftir slys, fall eða mikinn áverka
  • Stöðugur verkur sem versnar á nóttunni og lagast ekki við hvíld eða breytta stöðu
  • Saga um krabbamein ásamt nýjum verkjum

Í neyð skaltu hringja í 112. Læknavaktin svarar í síma 1700.

Algengar spurningar um brjóstbaksverki

Hvað er læsing í rifbeini?

Læsing í rifbeini er þegar liðurinn milli rifbeins og hryggjar verður stífur og aumur. Hún getur valdið stingandi verk við öndun, hósta eða hreyfingu, og bregst yfirleitt vel við meðferð.

Af hverju fæ ég verk milli herðablaðanna?

Algengasta skýringin er langvarandi seta og tölvuvinna sem veldur stífleika í brjóstbaki og spennu í vöðvunum milli herðablaðanna. Verkurinn getur líka leitt frá hálsinum.

Getur verkur í brjóstbaki tengst hjartanu?

Sjaldan. Verkur fyrir brjósti með mæði, svita, ógleði eða leiðni út í vinstri handlegg eða kjálka getur þó verið merki um hjartavandamál, og þá á að hringja strax í 112. Stoðkerfisverkir í brjóstbaki breytast yfirleitt við hreyfingu, öndun eða þrýsting.

Bókaðu tíma vegna brjóstbaksverkja

Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.

Bóka tíma

eða hringdu í 883 2422

Upplýsingarnar á þessari síðu eru almennar og koma ekki í stað skoðunar hjá heilbrigðisstarfsmanni.

Bóka tíma Hringja