Brjósklos: lagast það af sjálfu sér?

Höfundur: Leifur Guðjónsson, naprapati D.N. · Birt · Síðast uppfært

Já, oftast. Í safngreiningu á 31 rannsókn minnkaði eða hvarf brjósklos í mjóbaki hjá um 70% þeirra sem fengu meðferð án aðgerðar, oftast innan sex mánaða (Zou o.fl., 2024). Einkennin lagast líka hjá flestum á nokkrum vikum, og aðeins lítill hluti þarf á aðgerð að halda.

Hvað er brjósklos?

Brjósklos er þegar hluti af mjúkum kjarna hryggþófans þrýstist út í gegnum ytra lag hans. Hryggþófarnir liggja á milli hryggjarliðanna og virka eins og höggdeyfar. Ef brjósklosið ertir eða þrýstir á taugarót getur það valdið verk sem leiðir niður í rass og fót, dofa eða náladofa, það sem oft er kallað settaugarbólga.

Brjósklos er misstórt. Það getur verið allt frá lítilli útbungun, þar sem þófinn bungar aðeins út, upp í það að hluti kjarnans losnar alveg frá.

Hversu oft gengur brjósklos til baka?

Oftar en flestir halda. Í safngreiningu sem náði til 2.233 einstaklinga sem fengu meðferð án aðgerðar minnkaði eða hvarf brjósklosið hjá um 70% (Zou o.fl., 2024). Það sem kemur mörgum á óvart er að stærri brjósklos ganga oftar til baka en lítil:

  • Þegar hluti kjarnans hafði losnað frá (sequestration): um 88%
  • Þegar kjarninn hafði þrýst út í gegnum þófann (extrusion): um 67%
  • Þegar þófinn bungaði út (protrusion): um 38%
  • Væg útbungun (bulge): um 13%

Líkaminn virðist eiga auðveldara með að „hreinsa upp“ efni sem hefur losnað frá þófanum. Mest af þessu gerðist innan sex mánaða.

Hversu fljótt lagast einkennin?

Einkennin lagast oft áður en brjósklosið sjálft minnkar. Samkvæmt yfirlitsgrein lagast einkenni vegna brjóskloss hjá 60–80% á 6–12 vikum og hjá 80–90% til lengri tíma, það er eftir ár eða meira (Kögl o.fl., 2024).

Þýðir brjósklos á mynd að það valdi verknum?

Ekki endilega. Breytingar á hryggþófum eru mjög algengar hjá fólki sem finnur ekki til. Í yfirlitsrannsókn á 3.110 verkjalausum einstaklingum sást brjósklos (protrusion) hjá 29% tvítugra og 43% áttræðra, og útbungun hjá 30% tvítugra og 84% áttræðra (Brinjikji o.fl., 2015). Mörg slík merki eru hluti af eðlilegri öldrun. Myndgreining þarf því alltaf að túlka í samhengi við einkenni og skoðun.

Hvenær þarf aðgerð?

Yfirleitt er mælt með 6–12 vikna meðferð án aðgerðar ef ekki eru veruleg taugaeinkenni. Aðgerð kemur fyrr til greina ef verkir versna eða ný taugaeinkenni koma fram, til dæmis vaxandi máttleysi í fæti (Kögl o.fl., 2024).

Leitaðu strax á bráðamóttöku ef

  • þú finnur fyrir dofa í klofi eða við endaþarm
  • þú átt nýlega erfitt með að stjórna þvagi eða hægðum
  • máttleysi í fæti eða fótum eykst hratt

Þetta geta verið merki um mikinn þrýsting á taugar (cauda equina-heilkenni), sem er bráðatilvik.

Hvað getur þú gert sjálf(ur)?

Klínískar leiðbeiningar mæla með því að halda áfram að hreyfa sig innan sársaukamarka frekar en að liggja fyrir (NICE). Finndu stöður sem létta á leiðsluverknum, farðu í stuttar gönguferðir og brjóttu upp langar setur.

Hvernig getur naprapati hjálpað?

Naprapati skoðar einkennin, þar á meðal með taugaprófum á krafti, skyni og viðbrögðum, til að meta hvort taug sé klemmd og hversu mikið. Meðferðin miðar að því að draga úr verkjum og halda þér á hreyfingu meðan líkaminn vinnur sitt verk, með handvirkri meðferð, æfingum og ráðum um álag. Ef taugaeinkenni versna vísum við þér strax til læknis.

Algengar spurningar

Má ég hreyfa mig með brjósklos?

Já. Í flestum tilvikum er betra að halda áfram að hreyfa sig innan sársaukamarka en að liggja fyrir. Forðastu þó það sem eykur leiðsluverkinn niður í fót verulega.

Getur brjósklos komið aftur?

Það getur gerst. Regluleg hreyfing og styrkur hjálpa mörgum að halda sér góðum, þó að engin trygging sé fyrir því.

Á þetta líka við um brjósklos í hálsi?

Brjósklos í hálsi getur valdið leiðni út í handlegg og lagast líka oft án aðgerðar. Rannsóknirnar sem vitnað er í hér fjalla þó um brjósklos í mjóbaki. Sjá einnig hálsverki.

Viltu láta skoða þetta?

Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.

Bóka tíma

eða hringdu í 883 2422

Heimildir

  1. Zou T. o.fl. (2024). Incidence of spontaneous resorption of lumbar disc herniation: a meta-analysis. Clinical Spine Surgery, 37(6), 256–269.
  2. Kögl N. o.fl. (2024). Lumbar disc herniation – the significance of symptom duration for the indication for surgery. Deutsches Ärzteblatt International.
  3. Brinjikji W. o.fl. (2015). Systematic literature review of imaging features of spinal degeneration in asymptomatic populations. AJNR American Journal of Neuroradiology, 36(4).
  4. NICE (2016, uppfært 2020). Low back pain and sciatica in over 16s: assessment and management (NG59).

Upplýsingarnar eru almennar og koma ekki í stað skoðunar hjá heilbrigðisstarfsmanni.

Bóka tíma Hringja