Af hverju er mér enn illt? Um langvinna verki

Höfundur: Leifur Guðjónsson, naprapati D.N. · Birt · Síðast uppfært

Langvinnur verkur þýðir sjaldnast að eitthvað sé enn að skemmast. Verkur er upplifun sem tengist skemmd, en hann er ekki mælikvarði á hana. Margt annað en vefirnir sjálfir hefur áhrif á verkinn, og það er líka ástæðan fyrir því að hægt er að hafa áhrif á hann.

Hvað er langvinnur verkur?

Verkur er yfirleitt kallaður langvinnur þegar hann hefur varað lengur en í þrjá mánuði. Mjóbaksverkur er til dæmis flokkaður sem langvinnur þegar hann hefur staðið lengur en í 12 vikur (WHO). Flestir sem fá skyndilega bakverki ná sér vel, en hjá sumum halda einkennin áfram.

Hvað er verkur?

Alþjóðasamtök um rannsóknir á verkjum (IASP) skilgreina verk sem óþægilega skynjun og tilfinningalega upplifun sem tengist, eða líkist því sem tengist, raunverulegri eða mögulegri vefjaskemmd (Raja o.fl., 2020). Í skýringum með skilgreiningunni kemur meðal annars fram að:

  • verkur er alltaf persónuleg upplifun sem líffræðilegir, sálrænir og félagslegir þættir hafa áhrif á,
  • verkur og boð frá skynfrumum í vefjum eru ekki það sama, svo ekki er hægt að ráða verkinn eingöngu út frá ástandi vefjanna,
  • það á að taka mark á því þegar fólk segist finna til,
  • verkur gegnir yfirleitt verndandi hlutverki, en getur haft neikvæð áhrif á færni og líðan.

Með öðrum orðum: verkurinn er raunverulegur, en hann segir ekki alltaf til um hversu mikil skemmd er í vefjunum.

Af hverju hverfur verkurinn ekki þótt vefurinn hafi gróið?

Heiðarlega svarið er að það er ekki að fullu skilið. Oft er nefnt að taugakerfið geti orðið „ofurnæmt“ (miðlæg næming, central sensitization) og að það valdi langvinnum verkjum. Í gagnrýnu yfirliti frá 2024 fundu rannsakendur þó enga rannsókn sem sýndi fram á að miðlæg næming valdi langvinnum verkjum hjá fólki (Velasco o.fl., 2024). Það þýðir ekki að verkurinn sé ímyndun, heldur að skýringin er líklega flóknari en ein kenning.

Það sem við vitum er að margir þættir tengjast langvinnum verkjum, til dæmis svefn, streita, hreyfingarleysi, álag í vinnu og ótti við að hreyfa sig. Þess vegna mælir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) með heildrænni nálgun þar sem horft er á líkamlega, sálræna og félagslega þætti saman.

Myndgreining segir ekki alla söguna

Margir með langvinna verki hafa fengið að heyra að þeir séu með „slit“ eða „útbungun“. Slíkar breytingar eru þó mjög algengar hjá fólki sem finnur ekki til, og algengari með aldrinum (Brinjikji o.fl., 2015). Lestu meira í greininni Brjósklos: lagast það af sjálfu sér?

Hvað hjálpar?

  • Að skilja verkinn. Fræðsla um hvað verkur er getur dregið úr ótta og gert auðveldara að hreyfa sig.
  • Hreyfing og stigvaxandi álag. Byrjaðu þar sem þú ert og auktu álagið smám saman. Smá verkur við hreyfingu þýðir ekki endilega að þú sért að skemma eitthvað.
  • Svefn, streita og daglegt líf. WHO nefnir hreyfingu, andlega líðan, góðan svefn, heilbrigða líkamsþyngd og þátttöku í félagslífi og vinnu sem leiðir til að draga úr mjóbaksverkjum.
  • Handvirk meðferð sem stuðningur. Meðferð getur dregið úr verkjum til skamms tíma og auðveldað hreyfingu, en virkar best sem hluti af heildaráætlun.
  • Raunhæf markmið. Markmiðið er oft betri færni og meiri lífsgæði frekar en að verkurinn hverfi alveg strax.

Hvenær á að leita aðstoðar?

Leitaðu aðstoðar ef verkurinn takmarkar daglegt líf, svefn eða vinnu, eða ef þú veist ekki hvað þú mátt gera. Leitaðu til læknis ef verkjunum fylgir hiti, þyngdartap án skýringar, vaxandi dofi eða máttleysi, eða ef verkurinn versnar stöðugt óháð hreyfingu og hvíld.

Algengar spurningar

Er langvinnur verkur ímyndun?

Nei. Verkurinn er raunverulegur. Hins vegar segir hann ekki alltaf til um skemmd í vefjunum, og margir þættir, eins og svefn, streita og hreyfing, hafa áhrif á hann.

Þýðir verkur að ég sé að skemma eitthvað?

Ekki endilega, sérstaklega þegar verkurinn hefur staðið lengi. Smá aukning á verk við hreyfingu er oft í lagi. Í tímanum hjálpum við þér að finna hvað er óhætt og hvernig best er að auka álagið.

Á ég að forðast hreyfingar sem valda verk?

Oftast ekki alveg. Betra er að aðlaga þær og auka álagið smám saman, frekar en að hætta að hreyfa sig.

Viltu láta skoða þetta?

Fyrsti tími er um 45 mínútur: viðtal, skoðun, áætlun og meðferð, ásamt æfingum sem þú tekur með heim.

Bóka tíma

eða hringdu í 883 2422

Heimildir

  1. Raja S.N. o.fl. (2020). The revised International Association for the Study of Pain definition of pain: concepts, challenges, and compromises. Pain, 161(9).
  2. International Association for the Study of Pain (IASP). Terminology.
  3. Velasco E. o.fl. (2024). Is chronic pain caused by central sensitization? A review and critical point of view. Neuroscience & Biobehavioral Reviews, 167.
  4. WHO (2023). Low back pain – fact sheet.
  5. Brinjikji W. o.fl. (2015). Systematic literature review of imaging features of spinal degeneration in asymptomatic populations. AJNR American Journal of Neuroradiology, 36(4).

Upplýsingarnar eru almennar og koma ekki í stað skoðunar hjá heilbrigðisstarfsmanni.

Bóka tíma Hringja